Þór Clausen
Þegar þrítugsaldrinum er náð breytist margt í lífinu. Ungt fólk klárar menntaskóla, velur sér framtíðarstarf eða fer í framhaldsnám; fjárfestir í eigin húsnæði og bíl, fer að borga reikninga reglulega og þarf oftar en ekki að taka stórar ákvarðanir í tengslum við sambúð, giftingu og barneignir. Þetta er tími mikilla breytinga sem móta líf okkar til frambúðar. Því viðameiri sem breytingarnar eru, því mikilvægara er að taka upplýstar ákvarðanir sem byggja á fjármálalegum forsendum hvers og eins. Hér eru tíu boðorð fyrir fólk á þrítugsaldri sem mikilvægt er að hafa í huga með velferð í fjármálum að leiðarljósi.