Iðnaðarmenn - í blíðu og stríðu
9. mars 2010
Neytendasamtökunum berast mörg erindi er varðar viðskipti við iðnaðarmenn. Hér eru nokkur ráð handa neytendum sem þurfa á þjónustu iðnaðarmanna að halda:
Leitið tilboða
Það getur skipt miklu máli að leita eftir tilboðum frá fleiri en einum iðnaðarmanni, sérstaklega þegar um stór verk er að ræða. Í sumum tilvikum ber alveg ótrúlega mikið á milli. Iðnaðarmaðurinn hefur þó rétt á að taka gjald fyrir tilboðsgerðina.
Meðmæli
Ef einhver sem þú treystir getur bent þér á iðnaðarmann sem hefur reynst vel er það mikils virði. Því getur alltaf fylgt áhætta þegar einhver er valinn af handahófi úr símaskránni. En mikilvægast er þó að iðnaðarmaðurinn sé aðili að fagfélagi.
Hittu iðnaðarmanninn fyrirfram
Til að geta gert tilboð þarf iðnaðarmaðurinn líklega að koma á staðinn. Þá er gott að ræða við hann um verkið og hvernig hann kæmi til með að framkvæma það, hvaða efni hann myndi nota og hvers vegna. Hvort sem þú hefur vit á verkinu eða ekki þá myndast a.m.k. persónuleg samskipti.
Skriflegir samningar
Mjög mikilvægt er að hafa eitthvað skriflegt í höndunum frá iðnaðarmanninum. Í flestum málum sem berast Neytendasamtökunum hefur iðnaðarmaðurinn gert tilboð eða verðáætlun munnlega. Algengt er að ágreiningur rísi eftir að reikningur berst en þá getur reynst erfitt að sanna að það hafi verið samið um annað verð en kemur fram í reikningi. Þá er stundum eina leiðin að sýna fram á að reikningur sé ósanngjarn miðað við það verk sem var unnið, t.d. með því að fá matsmenn. Slíkt getur bæði verið kostnaðarsamt og tímafrekt. Ef beðið er um skriflegt og undirritað tilboð frá iðnaðarmanninum þar sem hann tilgreinir allt sem gera á, hvað það skuli kosta og hvenær verkinu skal lokið er staðan önnur. Í hlekkjasafni Neytendasamtakanna á www.ns.is er að finna eyðublað sem er gagnlegt að nota í viðskiptum við iðnaðarmenn (samningur um þjónustukaup).
Nótulaus viðskipti – ólögleg og óráðleg
Nótulaus viðskipti eru ekki eingöngu ólögleg heldur einnig óráðleg. Þú greiðir minna fyrir verkið en á móti kemur að þú færð ekki reikning og staða þín er að flestu leyti verri ef galli kemur upp í verkinu. Neytendasamtökin hafa vísað málum frá sem varða nótulaus viðskipti þar sem sönnunarstaðan er mjög slæm í flestum tilvikum, t.d. varðandi það hvað hefur verið greitt mikið inn á verkið.
Leiðbeiningaskylda iðnaðarmanna
Iðnaðarmenn eiga að gefa kaupandanum upplýsingar um það hvort verkið borgi sig, t.d. með tilliti til verðgildis hlutarins og kostnaðar við verkið.
Ber að standa við það tilboð sem þeir gefa
Iðnaðarmönnum ber að standa við það tilboð sem þeir gera. Hafi þeir aðeins gefið upp áætlað verð mega þeir ekki fara verulega fram úr áætluninni. Um flesta þjónustu iðnaðarmanna gilda lög um þjónustukaup. Samkvæmt lögunum á iðnaðarmaðurinn rétt á að krefjast hærri greiðslu en kemur fram í tilboði eða verðáætlun ef verðið hefur hækkað vegna einhvers sem hann gat ekki séð fyrir. Þetta á ekki við ef verðhækkunin varðar iðnaðarmanninn sjálfan, t.d. vegna skorts á vinnuafli, heldur aðeins ef eitthvað óvænt kemur upp við framkvæmd verksins sem iðnaðarmaðurinn gat ekki séð fyrir. Ef ljóst er að verðið muni hækka verður iðnaðarmaðurinn að tilkynna kaupandanum það án tafar og óska eftir fyrirmælum frá honum um hvað gera skuli.
Verkið dregst á langinn
Verkinu á að ljúka á umsömdum tíma. Hafi ekki verið samið um verklok á iðnaðarmaðurinn að ljúka við verkið innan sanngjarns frest eftir að kaupandinn gerir kröfu um það. Óviðráðanleg atvik geta þó orðið til þess að iðnaðarmaðurinn á rétt á fresti. Þegar seljandi dregur að ljúka við verk getur kaupandi í flestum tilvikum rift samningnum. Riftun hefur þá þýðingu að verkið stöðvast og ekki kemur til frekari vinnu af hálfu iðnaðarmannsins eða greiðslna af hálfu kaupanda. Kaupandinn verður þó almennt að greiða fyrir það sem iðnaðarmaðurinn hefur þegar unnið.
Ef kaupandinn verður fyrir tjóni vegna tafa iðnaðarmannsins getur hann farið fram á skaðabætur. Ef iðnaðarmaðurinn sýnir fram á að tafirnar séu ekki honum að kenna þarf hann ekki að greiða bætur fyrir þær.
Galli kemur upp
Ef galli kemur upp getur kaupandi farið fram á að iðnaðarmaðurinn lagfæri gallana nema það valdi iðnaðarmanninum ósanngjörnum kostnaði eða verulegu óhagræði. Yfirleitt eru það hagsmunir beggja aðila að iðnaðarmaðurinn bæti úr gallanum. Ef iðnaðarmaðurinn býður fram úrbætur og framkvæmir þær innan sanngjarns frests er kaupandinn bundinn af því að þiggja þær nema hann hafi sérstakar ástæður til að hafna þeim. Iðnaðarmaðurinn verður þá að framkvæma úrbæturnar án kostnaðar og verulegs óhagræðis fyrir kaupandann. Ef iðnaðarmaðurinn bætir hins vegar ekki úr gallanum innan sanngjarns frests getur kaupandinn farið fram á afslátt eða jafnvel riftun í ákveðnum tilvikum. Við þessar aðstæður er kaupandanum líka heimilt að leita til annars aðila til að laga gallann á kostnað iðnaðarmannsins.
Að halda eftir greiðslu
Kaupandi hefur í ákveðnum tilvikum rétt til að halda eftir greiðslu en það þarf að fara mjög varlega í slíkar aðgerðir. Í fyrsta lagi verður að hafa í huga að halda aldrei eftir hærri fjárhæð en nauðsynlegt er, t.d. ef um galla er að ræða er rétt að halda aðeins eftir samsvarandi fjárhæð og það myndi kosta að bæta úr gallanum. Almennt borgar sig að ráðfæra sig við lögfræðing áður en tekin er ákvörðun um að halda eftir greiðslu, sérstaklega ef um háa greiðslu er að ræða. Ástæðan er áhættan á því að þurfa að greiða háan innheimtukostnað og dráttarvexti af greiðslunni sem haldið er eftir.
Að greiða með fyrirvara
Til að losna við áhættuna af því að þurfa að greiða dráttarvexti og innheimtukostnað er hægt að greiða reikninginn með fyrirvara. Ef kaupandi greiðir fyrirvaralaust er oft litið svo á að hann hafi með því samþykkt reikninginn og því er ráðlegt að greiða með fyrirvara til að eiga betri möguleika á að krefjast endurgreiðslu. Þegar greitt er með fyrirvara þarf að koma fram á kvittunum sem báðir aðilar halda eintaki af að greitt hafi verið með fyrirvara. Einnig er hægt að óska eftir skriflegri yfirlýsingu frá seljanda um að honum sé kunnugt um að það hafi verið greitt með fyrirvara. Iðnaðarmaður skemmir eignina Ef iðnaðarmaður skemmir eign á meðan hann vinnur verkið verður hann að bæta tjónið nema hann geti sannað að skemmdin sé ekki honum að kenna.
Góð ráð
- óskaðu eftir tilboðum frá nokkrum aðilum þar sem verðmunur getur verið verulegur
- fáðu vini og vandamenn til að benda þér á góðan iðnaðarmann
- hittu iðnaðarmanninn áður en þú gerir samning við hann
- óskaðu eftir skriflegu tilboði þar sem fram kemur hvað á að gera, hvað það eigi að kosta og hvenær verkinu á að vera lokið
- ekki stunda nótulaus viðskipti

