Frumtak fjárfestir í Meniga
16. apríl 2010
Frumtak hefur fest kaup á hlut í Meniga ehf. Félagið var stofnað í byrjun síðasta árs til að þróa veflausnir sem eru sérhannaðar til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best. Vefur Meniga, www.meniga.is, fór í loftið á Íslandi í desember 2009 í samstarfi við Íslandsbanka og hefur fengið frábærar viðtökur. Notendur eru nú þegar yfir 7.000 og flestir þeirra heimsækja vefinn reglulega. Samkvæmt þjónustukönnunum eru yfir 80% notenda ánægðir eða hæstánægðir með lausnina og segjast munu nota hana reglulega í framtíðinni.
Hugbúnaður Meniga hefur frá upphafi verið þróaður með stærri markaði í Evrópu í huga og hefur Meniga nýlega hafið sölustarf erlendis en söludeild Meniga er í Stokkhólmi.
„Meniga er áhugavert fyrirtæki fyrir Frumtak“ sagði dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks. „Meniga hefur á stuttum tíma náð frábærum árangri í framsetningu á fjármálaupplýsingum heimila og einstaklinga. Það er aldrei mikilvægara en nú að gera einstaklingum kleift að fá sem bestar upplýsingar um fjármál sín og hvernig sé best að stýra þeim. Við væntum mikils af fyrirtækinu og erum sérstaklega áhugasöm að sjá fyrirtækið nýta sérþekkingu sína í sölu á fjármálalausnum sínum á erlendum mörkuðum. Þarna eru mikil tækifæri sem hægt er að nýta með því fjármagni sem fyrirtækið hefur fengið með aðkomu Frumtaks“.
„Við sjáum mikil tækifæri í að selja lausnina til banka í Evrópu enda er Meniga eitt fyrsta fyrirtækið til að bjóða upp á nýja kynslóð heimilisfjármálalausna sem eru sérhannaðar fyrir evrópskar aðstæður. Það er mikil eftirspurn eftir kerfinu í núverandi efnahagsástandi og það hjálpar okkur líka að hafa þróunarmiðstöð og tilraunamarkað á Íslandi enda eru heimilisfjármál hér mjög í brennidepli og erlendir viðskiptabankar eru áhugasamir um lausnir sem spretta úr íslenskum aðstæðum. Söluferlar eru hins vegar langir og það er ljóst að samstarf Meniga og Frumtaks mun gera Meniga kleift að setja þann kraft í sölu og markaðssetningu erlendis sem þarf til að auka verulega líkur á árangri”, sagði Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Meniga.
Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins og þriggja banka. Frumtak fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar. Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtak fjárfestir í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir.
Fleiri fréttir
-
Meniga í úrslitum til Íslensku vefverðlaunanna í 3 flokkum
30. janúar 2011Vefir Meniga hafa verið valdir í úrslit til Íslensku vefverðlaunanna 2010 í þremur flokkum en verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói 4. febrúar næstkomandi.
-
Rannís styrkir Meniga
14. júní 2010Meniga hefur hlotið verkefnastyrk úr Tækniþróunarsjóði Rannís til að þróa áfram heimilisfjármálalausn sína. Rannís og Iðnaðarráðuneytið kynntu úthlutun úr sjóðnum 10. júní síðastliðinn.
-
Meniga býður heimilisfjármálavef á Norðurlöndum
28. apríl 2010Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga, sem rekur samnefndan fjármálavef fyrir heimili, hefur valið Applicon í Svíþjóð, dótturfélag Nýherja hf, til þess að annast endursölu á lausnum félagsins til banka í Skandinavíu.
-
Opnað fyrir upplýsingar úr öðrum bönkum í Meniga
29. mars 2010Notendur Meniga geta nú flutt upplýsingar og færslur af reikningum og kortum allra íslenskra sparisjóða og banka inn í Meniga og öðlast þannig heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins.
-
Troðfullt út úr dyrum í opnunarteiti Meniga
7. desember 2009Meniga hélt vel heppnað teiti síðastliðinn fimmtudag í Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2, í tilefni af opnun heimilisfjármálavefsins www.meniga.is.
-
Meniga er ný veflausn sem sparar heimilum tugi þúsunda á ári
3. desember 2009Meniga.is er nýr og byltingakenndur heimilisfjármálavefur sem er sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best.

