Opnað fyrir upplýsingar úr öðrum bönkum í Meniga
29. mars 2010
Notendur Meniga geta nú flutt upplýsingar og færslur af reikningum og kortum allra íslenskra sparisjóða og banka inn í Meniga og öðlast þannig heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins.
Meniga er vefur sem er sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta fjármuni sína sem best.
Notendur Meniga eru í dag um 7000 talsins en vefurinn hefur verið starfræktur í um 3 mánuði. Vefurinn er þróaður af Meniga í samstarfi við Íslandsbanka og hefur samstarfið tryggt góða virkni og stöðugar endurbætur á viðmóti og valmöguleikum í kerfinu.
Hlustað eftir óskum viðskiptavina
Könnun sem Meniga gerði á nýlega leiddi í ljós að þriðjungur notenda er með einnig reikninga eða kort hjá öðrum bönkum og fjármálafyrirtækjum en Íslandsbanka. Meniga og Íslandsbanki telja mikilvægt að hlusta á ábendingar viðskiptavina sinna og einn liður í því er að gera notendum kleift að flytja færslur af reikningum og kortum annarra banka og sparisjóða inn í kerfið og ná þannig góðri yfirsýn fyrir fjármálin.
Sjá myndskeið: http://www.youtube.com/watch?v=b9Bs3M3gmAM
Á næstu mánuðum verða kynntar enn fleiri nýjungar á www.meniga.is
Fleiri fréttir
-
Meniga í úrslitum til Íslensku vefverðlaunanna í 3 flokkum
30. janúar 2011Vefir Meniga hafa verið valdir í úrslit til Íslensku vefverðlaunanna 2010 í þremur flokkum en verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói 4. febrúar næstkomandi.
-
Rannís styrkir Meniga
14. júní 2010Meniga hefur hlotið verkefnastyrk úr Tækniþróunarsjóði Rannís til að þróa áfram heimilisfjármálalausn sína. Rannís og Iðnaðarráðuneytið kynntu úthlutun úr sjóðnum 10. júní síðastliðinn.
-
Meniga býður heimilisfjármálavef á Norðurlöndum
28. apríl 2010Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga, sem rekur samnefndan fjármálavef fyrir heimili, hefur valið Applicon í Svíþjóð, dótturfélag Nýherja hf, til þess að annast endursölu á lausnum félagsins til banka í Skandinavíu.
-
Frumtak fjárfestir í Meniga
16. apríl 2010Frumtak hefur fest kaup á hlut í Meniga ehf. Félagið var stofnað í byrjun síðasta árs til að þróa veflausnir sem eru sérhannaðar til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best.
-
Troðfullt út úr dyrum í opnunarteiti Meniga
7. desember 2009Meniga hélt vel heppnað teiti síðastliðinn fimmtudag í Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2, í tilefni af opnun heimilisfjármálavefsins www.meniga.is.
-
Meniga er ný veflausn sem sparar heimilum tugi þúsunda á ári
3. desember 2009Meniga.is er nýr og byltingakenndur heimilisfjármálavefur sem er sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best.

