Íslenska

Fréttir

Meniga býður heimilisfjármálavef á Norðurlöndum

28. apríl 2010

Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga, sem rekur samnefndan fjármálavef fyrir heimili, hefur valið Applicon í Svíþjóð, dótturfélag Nýherja hf, til þess að annast endursölu á lausnum félagsins til banka í Skandinavíu.

Meniga.is er heimilisfjármálavefur sem gerir fólki mögulegt að öðlast heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins, halda bókhald og bendir á leiðir til sparnaðar sem eru sérsniðnar að neyslumynstri hvers og eins. Meniga sækir og flokkar sjálfvirkt allar færslur af bankareikningum og greiðslukortum notenda og setur sjálfkrafa upp fjárhagsáætlun sem byggir á raunútgjöldum síðustu mánaða. Þúsundir hafa tekið lausnina í notkun á Íslandi og er markmiðið með samstarfi Meniga við Applicon í Svíþjóð að bjóða samskonar lausn þar í landi og víðar á Norðurlöndunum.
 
„Meniga er næsta kynslóð af netbankaþjónustu sem tryggir notendum fjármálaráðgjöf í rauntíma. Lausnin mun gjörbreyta samskiptum viðskiptavina og banka á sama hátt og netbankar gerðu fyrir 15 árum. Með virðisaukandi lausn eins og Meniga geta bankar boðið einstaklingum einkar skilvirka og hagkvæma leið til þess að ná heildarsýn yfir fjármál heimilisins. Um leið geta bankar eflt langtímasamband sitt við viðskiptavini. Við höfum miklar væntingar til samstarfsins og hlökkum til að bjóða lausnina til viðskiptavina,“ segir Arne Nabset framkvæmdastjóri Applicon í Svíþjóð.

„Heimilisfjármálavefir á borð við Meniga hafa slegið í gegn hjá viðskiptavinum banka á Íslandi, Spáni, í Bandaríkjunum og víðar en engin slík þjónusta hefur verið í boði í Skandinavíu fram að þessu. Samstarfið við Applicon fellur mjög vel að áformum Meniga um að selja lausnir sínar á Norðurlöndum enda hefur Applicon náð frábærum árangri í sölu lausna og þjónustu til banka og fjármálafyrirtækja þar,“ segir Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri Meniga.

Um Meniga: – http://www.meniga.is/

Meniga er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki með starfsemi í Reykjavík og Stokkhólmi. Fyrirtækið er leiðandi í þróun veflausna fyrir heimilisfjármálin hvort sem litið er til virkni, notagildis, sveigjanleika eða öryggis. Heimilisfjármálavefur Meniga hefur hlotið gríðarlega góðar viðtökur á Íslandi síðan honum var hleypt af stokkunum í samstarfi við Íslandsbanka í desember 2009. Notendur vefsins eru í dag á áttunda þúsund.

Nánari upplýsingar:
Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri: +46 (0)7 67 822 146
georg@meniga.com

Um Applicon í Svíþjóð: – http://www.applicon.se/ 

Applicon í Svíþjóð er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki á sviði viðskiptahugbúnaðar með megin áherslu á SAP, Calypso og Microsoft lausnir. Starfsemi félagsins byggist á sölu lausna og þjónustu til banka og fjármálafyrirtækja. Rúmlega 40 manns starfa hjá Applicon í Svíþjóð en félagið er hluti af Nýherja samstæðunni.

Nánari upplýsingar:
Arne Nabseth framkvæmdastjóri: +46 (0)8 407 36 80 
arne.nabseth@applicon.se

Deila á Facebook

Til baka


Fleiri fréttir