Rannís styrkir Meniga
14. júní 2010
Meniga hefur hlotið verkefnastyrk úr Tækniþróunarsjóði Rannís til að þróa áfram heimilisfjármálalausn sína. Rannís og Iðnaðarráðuneytið kynntu úthlutun úr sjóðnum 10. júní síðastliðinn. Markmið verkefnisins er að styrkja samkeppnisforskot Meniga á erlendum mörkuðum með þróun þriggja nýrra kerfishluta:
- Utanumhald eigna og skulda. Kerfishluti sem greinir eignir og skuldir notenda Meniga og aðstoðar þá við að borga niður skuldir og byggja upp eignir og fjárfestingar.
- Aðgangur úr farsímum og lófatölvum. Kerfishluti sem gerir hluta af virkni Meniga aðgengilega úr farsímum og lófatölvum.
- Fjárhagsleg heilsa. Kerfishluti sem hjálpar notendum að meta og bæta sína fjárhagslegu heilsu og ráðleggur þeim hvernig þeir geta náð sínum fjárhagslegu markmiðum í lífinu. Hönnun þessa kerfishluta verður unnin í samvinnu við Stofnun um fjármálalæsi.
Styrkur úr Tækniþróunarsjóði er mikil viðurkenning fyrir Meniga og styður við þau markmið fyrirtækisins að bjóða heildarlausn á sviði heimilisfjármála með ýmsa virkni sem hvergi er að finna í öðrum leiðandi heimilisfjármálalausnum í heiminum.
Fleiri fréttir
-
Meniga í úrslitum til Íslensku vefverðlaunanna í 3 flokkum
30. janúar 2011Vefir Meniga hafa verið valdir í úrslit til Íslensku vefverðlaunanna 2010 í þremur flokkum en verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói 4. febrúar næstkomandi.
-
Meniga býður heimilisfjármálavef á Norðurlöndum
28. apríl 2010Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga, sem rekur samnefndan fjármálavef fyrir heimili, hefur valið Applicon í Svíþjóð, dótturfélag Nýherja hf, til þess að annast endursölu á lausnum félagsins til banka í Skandinavíu.
-
Frumtak fjárfestir í Meniga
16. apríl 2010Frumtak hefur fest kaup á hlut í Meniga ehf. Félagið var stofnað í byrjun síðasta árs til að þróa veflausnir sem eru sérhannaðar til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best.
-
Opnað fyrir upplýsingar úr öðrum bönkum í Meniga
29. mars 2010Notendur Meniga geta nú flutt upplýsingar og færslur af reikningum og kortum allra íslenskra sparisjóða og banka inn í Meniga og öðlast þannig heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins.
-
Troðfullt út úr dyrum í opnunarteiti Meniga
7. desember 2009Meniga hélt vel heppnað teiti síðastliðinn fimmtudag í Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2, í tilefni af opnun heimilisfjármálavefsins www.meniga.is.
-
Meniga er ný veflausn sem sparar heimilum tugi þúsunda á ári
3. desember 2009Meniga.is er nýr og byltingakenndur heimilisfjármálavefur sem er sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best.

