Meniga í úrslitum til Íslensku vefverðlaunanna í 3 flokkum
30. janúar 2011
Vefir Meniga hafa verið valdir í úrslit til Íslensku vefverðlaunanna 2010 í þremur flokkum en verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói 4. febrúar næstkomandi.
Sölu- og markaðsvefur Meniga, www.meniga.com, er tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna í flokknum "Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með færri en 50 starfsmenn." Heimilisfjármálavefur Meniga, www.meniga.is, er tilnefndur í flokknum "Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn." Og loks er farsímaútgáfa heimilisfjármálavefsins Meniga, m.meniga.is, tilnefndur í flokknum "Besti hand-smátækja vefurinn."
Meniga er afar stolt af að komast í úrslit til þessara eftirsóttu verðlauna en úrlslitavefirnir þrír voru alfarið þróaðir af starfsfólki Meniga. Hönnun sölu- og markaðsvefs Meniga og heimilisfjármálavefs Meniga var unnin í samstarfi við Skapalón.
Dómnefnd Íslensku vefverðlaunanna er skipuð fagfólki í vefmálum.
Sjá nánar á vef Samtaka vefiðnaðarins.
Fleiri fréttir
-
Rannís styrkir Meniga
14. júní 2010Meniga hefur hlotið verkefnastyrk úr Tækniþróunarsjóði Rannís til að þróa áfram heimilisfjármálalausn sína. Rannís og Iðnaðarráðuneytið kynntu úthlutun úr sjóðnum 10. júní síðastliðinn.
-
Meniga býður heimilisfjármálavef á Norðurlöndum
28. apríl 2010Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga, sem rekur samnefndan fjármálavef fyrir heimili, hefur valið Applicon í Svíþjóð, dótturfélag Nýherja hf, til þess að annast endursölu á lausnum félagsins til banka í Skandinavíu.
-
Frumtak fjárfestir í Meniga
16. apríl 2010Frumtak hefur fest kaup á hlut í Meniga ehf. Félagið var stofnað í byrjun síðasta árs til að þróa veflausnir sem eru sérhannaðar til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best.
-
Opnað fyrir upplýsingar úr öðrum bönkum í Meniga
29. mars 2010Notendur Meniga geta nú flutt upplýsingar og færslur af reikningum og kortum allra íslenskra sparisjóða og banka inn í Meniga og öðlast þannig heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins.
-
Troðfullt út úr dyrum í opnunarteiti Meniga
7. desember 2009Meniga hélt vel heppnað teiti síðastliðinn fimmtudag í Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2, í tilefni af opnun heimilisfjármálavefsins www.meniga.is.
-
Meniga er ný veflausn sem sparar heimilum tugi þúsunda á ári
3. desember 2009Meniga.is er nýr og byltingakenndur heimilisfjármálavefur sem er sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best.

