Meniga ehf. er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki með aðsetur í frjóu frumkvöðlaumhverfi að Ofanleiti 2 í Reykjavík. Markmið Meniga er að verða leiðandi þekkingarfyrirtæki á heimsvísu á sviði veflausna fyrir heimilisfjármálin. Ísland er þróunarmiðstöð Meniga enda eru aðstæður, af ýmsum ástæðum, ákjósanlegar hér til að þróa veflausn í fremstu röð á þessu sviði.
Starfsmenn Meniga eru með margvíslega reynslu og þekkingu af heimilisfjármálum og tæknilausnum á fjármálasviði. Að auki reiðir Meniga sig á ýmsa verktaka, ráðgjafa og velunnara fyrirtækisins.
Stofnendur og lykilstarfsmenn Meniga eru eftirfarandi:
Georg Lúðvíksson
Framkvæmdastjóri og stofnandi
Meniga vefurinn byggir á hugmyndum og skýrri sýn Georgs varðandi hvernig nota megi nýjustu vef- og upplýsingatækni til að auðvelda fólki stjórnun heimilisfjármálanna. Georg hefur brennandi áhuga á fjármálum heimilinna og er eini maðurinn sem hann þekkir sem veit upp á krónu hvað hann hefur eytt í alla útgjaldaflokka síðan á síðustu öld. Georg hefur á undanförnum árum notað flestar af helstu hugbúnaðarlausnum sem í boði eru fyrir heimilisfjármálin og hefur sterkar skoðanir á því hvernig er hægt að gera betur sem endurspeglast í veflausn Meniga. Auk þess að vera í forsvari fyrir Meniga er Georg heimilisfjármála-"gúrú" Meniga vefsins.
Georg hefur yfir 10 ára reynslu af stofnun og rekstri sprotafyrirtækja í upplýsingatækni bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Meniga er ekki fyrsti fjármálavefurinn sem Georg stofnar því hann er einn stofnenda hlutabréfavefsins UpDown.com sem náð hefur mikilli útbreiðslu í Bandaríkjunum. Hjá UpDown var Georg ábyrgur fyrir skilgreiningu á virkni vefsins og mælingum á notkun og ánægju notenda. Áður var Georg sölustjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Mönnum og músum ehf og hjálpaði fyrirtækinu að auka sölu stórra hugbúnaðarlausna á Bandaríkjamarkaði. Þar áður var Georg einn stofnenda og lykilstarfsmanna Dímons hugbúnaðarhúss sem átti í nánu samstarfi við Nokia og var um tíma með stærri hugbúnaðarhúsum Íslands.
Georg er tölvuverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Harvard Business School með áherslu á frumkvöðlafræði og fjármál.
Ásgeir Örn Ásgeirsson
Tæknistjóri og stofnandi
Ásgeir leiðir tæknilega þróun Meniga vefsins og undir hans stjórn hefur Meniga tekist að þróa heimilisfjármálaveflausn í fremstu röð í heiminum á ótrúlega skömmum tíma. Ásgeir býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu á tækniumhverfi fjármálalausna og hefur yfir 10 ára reynslu af hugbúnaðarþróun og stjórnun öflugra hugbúnaðarþróunarhópa.
Áður en Ásgeir stofnaði Meniga starfaði hann hjá Landsbanka Íslands þar sem hann leiddi þróun netbankalausna bankans í 3 ár. Þar áður starfaði hann hjá Taugagreiningu, Dímon hugbúnaðarhúsi og Teamware (Finnland), þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri.
Ásgeir er tölvuverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.
Viggó Ásgeirsson
Markaðsstjóri og stofnandi
Viggó er ábyrgur fyrir markaðssetningu Meniga og hefur yfir 10 ára reynslu af stjórnun vefmála og markaðssetningu fjármálalausna.
Viggó hefur starfað um árabil að vef- og markaðsmálum íslenskra banka og hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín. Viggó starfaði hjá Landsbankanum frá 2003-2009 þar sem hann var forstöðumaður vefdeildar frá 2003 og einnig forstöðumaður markaðsdeildar frá 2005. Landsbankinn var útnefndur markaðsfyrirtæki ársins árið 2007 og eins hafa vefir bankans fengið öll vefverðlaun sem hægt er að vinna á Íslandi undir stjórn Viggós, m.a. árið 2004 þegar Landsbankinn hlaut vefverðlaun í öllum flokkum – en það er í eina skiptið sem það hefur gerst. Áður var Viggó forstöðumaður vefdeildar Búnaðarbanka Íslands og þar áður vefstjóri Símans.
Viggó er sagnfræðingur frá Háskóla Íslands og er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.
Tinna Karen Gunnarsdóttir
Hugbúnaðarsérfræðingur
Tinna er ábyrg fyrir framendaþróun og grafísku útliti á Meniga vefnum og hefur yfir að ráða fjölþættum hæfileikum og reynslu sem gera hana einstaklega hæfa í sínu starfi.
Tinna hefur starfað við fjölbreytt verkefni á sviði vefforritunar í yfir 10 ár. Áður en Tinna hóf störf hjá Meniga starfaði hún um árabil hjá EC Software á Íslandi við margvísleg verkefni á sviði vefforritunar, hönnunar, starfsmannaþjálfunar og verkefnisstjórnunar. Tinna starfaði í yfir 2 ár á Indlandi fyrir EC Software þar sem hún byggði upp, þjálfaði og stjórnaði 35 manna hugbúnaðardeild auk þess sem hún hafði yfirumsjón með flestum verkefnum fyrirtækisins á sama tíma. Áður starfaði Tinna við vefforitun hjá Landsbankanum og ráðgjafarfyrirtækinu Netinu.
Tinna er með BS gráðu í tölvunarfræði frá University of North Carolina auk þess sem hún stundaði fjarnám í „Media arts and animation“ frá Art Institute of California í San Francisco.
Helgi Benediktsson
Hugbúnaðarsérfræðingur
Helgi hefur yfir 10 ára reynslu af hugbúnaðargerð bæði í sprotaumhverfi og í stærri fyrirtækjum.
Frá 2006 starfaði hann hjá Landsbankanum við smíði afgreiðslukerfa fyrir starfsmenn bankans en einnig sem hópstjóri í hugbúnaðardeild. Á árunum 2004-2006 vann hann að hugbúnaðarverkefnum og verkfræðilegum úrlausnum í sprotafyrirtækinu Marorku sem sérhæfir sig í framleiðslu hugbúnaðar til að hámarka orkunýtingu um borð í skipum. Frá 2000-2003 starfaði hann hjá Dímon hugbúnaðarhúsi við lausnir tengdar umbreytingu gagna fyrir farsíma og önnur kerfi. Í framhaldi af því starfi og áður en hann hóf störf hjá Marorku vann hann síðan á eigin vegum að ráðgjafarstörfum fyrir flutningafyrirtækið Eimskip.
Helgi er M.Sc. í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og er um þessar mundir að vinna að ritgerð til Mastersprófs í fjármálahagfræði frá sama skóla samhliða starfi sínu hjá Meniga.
Friðgeir Torfi Ásgeirsson
Samfélagsstjóri
Friðgeir er ábyrgur fyrir að halda Meniga í góðu sambandi við notendur kerfisins og sjá til þess að almenn ánægja ríki með notkun þess. Friðgeir hlustar á notendur og kemur hugmyndum þeirra og skoðunum á framfæri við þróunardeildina og fylgir því eftir að ábendingar notenda skili sér í þróun Meniga. Friðgeir ber líka ábyrgð á því að aðstoða þá notendur sem lenda í vandræðum.
Friðgeir er með B.Sc gráðu í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur unnið við ráðgjöf og þjónustu síðan hann útskrifaðist, fyrst hjá Fakta ehf og síðar Opnum Kerfum. Áður en Friðgeir hóf störf hjá Meniga vann hann hjá Stika ehf. sem þjónustustjóri hugbúnaðarsviðs.
Friðgeir er einnig með Bachelor gráðu í Arkitektúr frá Háskólanum í Álaborg.
Einar Þór Gústafsson
Vörustjóri
Þegar Einar bjó til sína fyrst vefsíðu árið 1998 þá varð honum ljóst hvað hann vildi gera þegar hann yrði stór. Þó að hann sé þekktur fyrir að nota bæði heilahvelin þá virðist hann nota hægri hliðina mun oftar.
Sem viðmóts og upplýsinga hönnuður hefur Einar lagt sérstaka áherslu á fjármálaupplýsingar og netbanka kerfi. Áður en Einar gekk til liðs við Meniga þá vann hann í 7 ár hjá Íslandsbanka/Glitni m.a. sem vefstjóri og forstöðumaður vefþróunar .
Einar er einnig einn af stofnendum SVEF, Samtaka Vefiðnaðarins, og var kjörinn formaður þess haustið 2009. Hann er upphafsmaður Iceweb ráðstefnunnar og hefur komið að skipulagningu hennar fyrir hönd SVEF.
Hægt er að fylgjast með Einari á www.twitter.com/einargustafsson.

