Notenda prófanir Meniga
Við hjá Meniga bjóðum fólki reglulega að koma og prófa kerfið okkar. Þeir sem prófa fá einföld verkefni til að leysa í Meniga, hugsa upphátt og leyfa okkur að fylgjast með. Við launum þeim síðan með einhverju eins og út að borða fyrir tvo.
Með þessu viljum við reyna að bæta kerfið okkar, við teljum að bestu prófarar á kerfið okkar sé venjulegt fólk því að við erum að búa til kerfi fyrir venjulegt fólk. Ef þú hefur áhuga á því að hjálpa okkur að bæta kerfið (og skella þér síðan út að borða) máttu endilega skrá þig hér að neðan.

