Þú getur skráð þig fyrir aðgangi að Meniga gegnum Netbanka Arion banka, Netbanka Íslandsbanka og Einkabanka Landsbankans.
-
Getur flutt inn færslur úr öllum bönkum og sparisjóðum
Auðvelt er að flytja upplýsingar og færslur af reikningum og kortum allra íslenskra banka og sparisjóða inn í Meniga og öðlast þannig heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins.
-
Sameiginlegur aðgangur fyrir sambúðarfólk
Við mælum með því að sambúðarfólk eða aðrir fjárhagslega tengdir aðilar noti Meniga saman til að fá heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins. Hægt er að tengja saman aðgang tveggja eða fleiri notenda. Einnig er auðvelt að flytja upplýsingar og færslur af reikningum og kortum maka úr hvaða banka eða sparisjóði sem er inn í Meniga.
Þú getur skráð þig á póstlista Meniga til að fá senda tilkynningu þegar við opnum fyrir nýskráningu gegnum netbanka annarra banka en Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans:
Allar athugasemdir og ábendingar um það sem betur má fara í hönnun og virkni vefsins eru mjög vel þegnar og skal senda á netfangið abendingar@meniga.is.
Meniga sparar þér tíma og peninga og er líka ókeypis.
Kær kveðja,
Starfsfólk Meniga

