Hvað er Meniga?
Meniga er vefur sem er sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best. Vefurinn er í senn:
- Fullkomið heimilisfjármálakerfi sem sækir og flokkar sjálfkrafa allar færslur af bankareikningum og greiðslukortum, aðstoðar notendur við að halda heimilisbókahald og gera raunhæfar áætlanir, og birtir hagnýt sparnaðarráð sniðin að neyslumynstri hvers og eins.
- Nútímalegur vefur með fullkomnu notendaviðmóti og samfélagsívafi þar sem notendur styðja hver annan við að ná markmiðum og spara.
- Fljótlegri, þægilegri og skemmtilegri leið til að halda utan um heimilisfjármálin - hentar jafnvel þeim sem hlaupa í felur þegar þeir heyra minnst á orðið heimilisbókhald.
Meniga vefurinn er ókeypis í notkun fyrir alla en Meniga aflar tekna með auglýsingum og samstarfi við fjármálastofnananir.
Traust er lykilatriði í öllum rekstri Meniga og þess vegna leggur fyrirtækið ofuráherslu á að tryggja, með margvíslegum hætti, trúnað, áreiðanleika og örugga og ábyrga meðferð upplýsinga. Öryggis- og persónuverndarstefna Meniga inniheldur ítarlegar upplýsingar um öryggismál og meðferð upplýsinga.
Hverjir eru kostir þess að nota Meniga?
-
Sparar tíma
Stjórnun heimilisfjármálanna er okkur flestum nauðsynleg til að hafa okkar á hreinu, ekki síst á tímum fallandi kaupmáttar - en flest kjósum við þó frekar að verja tímanum í eitthvað annað. Með aðstoð Meniga taka fjármálin skemmri tíma.
-
Sparar peninga
Sparnaður þarf ekki alltaf að vera sársaukafullur, t.d. þegar hægt er kaupa sömu vörurnar eða þjónustuna á lægra verði. Meniga birtir raunhæf sparnaðarráð sniðin að neyslumynstri hvers og eins. Að auki er hægt að bera sig saman við aðra og sjá ráð frá öðru fólki sem verslar á sömu stöðum.
-
Skemmtilegri heimilisfjármál
Heimilisfjármálin eru almennt ekki ofarlega á lista fólks yfir uppáhaldsafþreyingu í lífinu. Með aðstoð Meniga vefsins er þó fullvíst að þau hækka um mörg sæti.
Hvernig virkar Meniga?
Meniga vefurinn inniheldur margvíslega virkni til að hjálpa fólki að fá yfirsýn yfir fjármálin, halda bókhald, og finna raunhæfar leiðir til sparnaðar. Eftirfarandi eru lykilþættir í virkni Meniga vefsins:
-
Sjálfvirkt heimilisbókhald sem veitir fullkomna yfirsýn yfir fjármálin
Meniga sækir og flokkar sjálfvirkt allar færslur af bankareikningum og greiðslukortum notenda. Með einföldum hætti er hægt að fylgjast með útgjöldum, tekjum og stöðu heimilisfjármálanna á myndrænan og skýran hátt. Meniga man breytingar sem gerðar eru á sjálfvirkri flokkun og aðlagast þannig neyslumynstri hvers og eins.
-
Sparnaðarráð og persónuleg greining á neyslu
Meniga greinir neyslu notenda og birtir sparnaðarráð og hagnýtar upplýsingar sem eru sérsniðnar til að hjálpa notendum að nýta peningana sína sem best. Meniga leggur sig t.d. fram við að birta nýjustu tilboðin í þeim verslunum sem hver notandi verslar við og sýnir sparnaðarráð, tengd einstökum verslunum eða útgjaldaflokkum, sem aðrir notendur hafa sett inn á vefinn.
-
Raunhæf markmiðasetning og virkt aðhald
Meniga setur sjálfkrafa upp fjárhagsáætlun sem byggir á raunútgjöldum síðustu 12 mánuði. Meniga aðstoðar notendur jafnframt við að setja sér raunhæf markmið og sýnir þeim hvað þeir eyða frá degi til dags svo auðveldara sé að halda áætlun.
-
Samfélag og samanburður við aðra
Á Meniga geta notendur borið meðalútgjöld í hverjum útgjaldaflokki saman við útgjöld annarra notenda. Samanburðurinn er skemmtilegur fyrir flesta og auðveldar notendum að setja sér raunhæf markmið. Einnig er hægt að lesa sparnaðarráð frá öðrum notendum og skiptast á skoðunum um einstakar verslanir og útgjaldaflokka. Meniga er lifandi samfélag fólks sem er umhugað um sína fjárhagslegu framtíð.
-
Fræðsla
Á Meniga er að finna ýmsar greinar og fróðleik um heimilisfjármál Íslendinga.

