Íslenska

Í fjölmiðlum

Hægt að skoða alla reikninga í Meniga

Viðskiptavinir Íslandsbanka sem nota fjármálavefinn Meniga geta nú flutt upplýsingar og færslur af reikningum og kortum allra íslenskra sparisjóða og banka inn í Meniga og öðlast þannig heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins.

Heimild: visir.is | Mars 2010

Lesa meira

Notendur viðskiptavefsins Meniga 3.000 talsins

Notendur viðskiptavefsins Meniga hjá Íslandsbanka eru nú tæplega 3.000 og þeim fjölgar hratt. Allir viðskiptavinir Íslandsbanka geta fengið aðgang að Meniga í gegnum Netbanka Íslandsbanka. Í tilkynningu segir að þann 13. janúar kynnti nýsköpunarfyrirtækið Meniga ehf., í samstarfi við Íslandsbanka, byltingakenndan heimilisfjármálavef sem tengdur er við Netbanka Íslandsbanka og ber nafnið Meniga.

Heimild: visir.is | Janúar 2010

Lesa meira

Þrjú þúsund viðskiptavinir nýta sér fjármálavefinn Meniga

Nýsköpunarfyrirtækið Meniga ehf., kynnti 13. janúar, í samstarfi við Íslandsbanka, byltingakenndan heimilisfjármálavef sem tengdur er við Netbanka Íslandsbanka og ber nafnið Meniga. Vefurinn hjálpar notendum að öðlast yfirsýn yfir rekstur heimilisins og bendir á raunhæfar leiðir til sparnaðar sem eru sérsniðnar að neyslumynstri notenda.

Heimild: amx.is | Janúar 2010

Lesa meira

Troðfullt út úr dyrum í opnunarteiti Meniga - myndir

Meniga hélt vel heppnað partý í Hugmyndahúsinu að Grandagarði 2, síðastliðinn fimmtudag, í tilefni af opnun heimilisfjármálavefsins Meniga.is. Á annað hundrað gesta, einkum úr sprotaheiminum, mættu á staðinn og hlýddu á kynningu frá aðstandendum Meniga en vefurinn www.meniga.is veitir fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga með flottari og nýstárlegri hætti en áður hefur þekkst.

Heimild: pressan.is | Desember 2009

Lesa meira

Gáfuð partýljón fagna - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá partýljónin sem mættu í vel heppnað partý í Hugmyndahúsinu að Grandagarði 2, síðastliðinn fimmtudag, í tilefni af opnun heimilisfjármálavefsins Meniga.is.

Heimild: visir.is | Desember 2009

Lesa meira

Meniga.is: Næsta kynslóð netbanka sem greinir neyslumynstur notenda

Fjármálavefurinn Meniga.is opnaði í dag. Kerfið flokkar allar færslur notenda sjálfkrafa, setur upp heimilisbókhald og fjárhagsáætlun, greinir neyslumynstur notenda og sýnir þeim hvernig þeir eyða í samanburði við aðra. Hann hjálpar þeim einnig við að finna leiðir til að spara. Framkvæmdastjóri vefsins segir vefinn af næstu kynslóð netbanka. Hann verður þróaður á Íslandi en stofnendur ætla að sækja á erlenda markaði.

Heimild: pressan.is | Desember 2009

Lesa meira

Nýr heimilisfjármálavefur

Meniga.is er nýr og byltingakenndur heimilisfjármálavefur sem er sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best. Vefurinn hjálpar fólki að öðlast heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins, halda bókhald og bendir á raunhæfar leiðir til sparnaðar sem eru sérsniðnar að neyslumynstri hvers og eins, að því er fram kemur í tilkynningu Meniga.

Heimild: amx.is | Desember 2009

Lesa meira

Nýr heimilisfjármálavefur

Sprotafyrirtækið Meniga ehf. hefur opnað nýjan heimilisfjármálavef sem greinir neyslu og gefur heildarsýn yfir fjármál heimilisins að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Markmið vefjarins er að hjálpa fólki að öðlast yfirsýn yfir fjármál heimilisins, halda bókhald og benda á leiðir til sparnaðar..

Heimild: ruv.is | Desember 2009

Lesa meira

Nýr heimilisfjármálavefur í loftið

Meniga.is er nýr heimilisfjármálavefur sem fer í loftið í dag. Segir í tilkynningu að vefurinn sé sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálun um og nýta peningana sína sem best.

Heimild: mbl.is | Desember 2009

Lesa meira

Sérhannaður vefur um fjármál heimila

Meniga.is er nýr heimilisfjármálavefur sem er sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálun um og nýta peningana sína sem best. Vefurinn hjálpar fólki að öðlast heildaryfirsýn yfir fjármál heimilisins, halda bókhald og bendir á raunhæfar leiðir til sparnaðar sem eru sérsniðnar að neyslumynstri hvers og eins.

Heimild: visir.is | Desember 2009

Lesa meira

Heimilisbókhaldið gert skemmtilegt og fræðandi

Heimilisfjármálavefurinn meniga.is er einfaldur í notkun og gagnlegur að sögn Georgs Lúðvíkssonar, sem segir notendur geta sparað tugþúsundir árlega. "Við munum hjálpa fólki að spara tugi þúsunda á ári, sem eru góðar fréttir þegar álögur eru að hækka og kaupmáttur minnkar," segir Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Meniga, heimilisfjármálavefjar sem nýverið fór í loftið.

Heimild: Fréttablaðið | Desember 2009

Lesa meira


Kostir Meniga

Sparaðu tíma

Fullkomin yfirsýn yfir heimilisfjármálin með sjálfvirkri flokkun færslna.

Haltu þig innan ramma

Auðskiljanleg tól til að halda bókhald og gera raunhæfar áætlanir.

Gott fyrir veskið

Sparnaðarráð sem eru sérsniðin að þínu neyslumynstri.

Skemmtilegri fjármál

Samfélag, samanburður við aðra og skoðanaskipti.