Vegna stóraukinna umsvifa erlendis leitar Meniga eftir öflugum liðsmönnum til að styrkja hugbúnaðarþróun fyrirtækisins.
Við viljum ráða sérfræðinga með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu til að taka þátt í að hanna og þróa með okkur vef- og farsímalausnir á heimsmælikvarða. Lausnir okkar byggja að miklu leyti á úrvinnslu og greiningu gagna og eru hannaðar til að skalast vel og höndla mikið gagnamagn. Þær eru þróaðar þannig að auðvelt sé að aðlaga þær að tækniumhverfi ólíkra banka. Markmið okkar er að hjálpa bönkum að auka ánægju viðskiptavina sinna með notendavænum og „snjöllum“ hugbúnaði.
Meðal verkefna er forritun nýjunga, forritun farsíma- og spjaldtölvulausna, hönnun gagnagrunna og vöruhúsa, útfærsla á gervigreind og aðlögun að netbönkum erlendra banka.
Hugbúnaðarsérfræðingar
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf á sviði tölvunar-, verk- eða kerfisfræði, sambærilegt nám eða umtalsverð starfsreynsla
- Þekking og reynsla af C# .NET. Kunnátta í gagnagrunnsforritun og þróun farsíma- og spjaldtölvulausna kostur
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum
- Mjög gott vald ensku
Viðmótssérfræðingar
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Gott vald á CSS, HTML, JavaScript og jQuery. Þekking á þróun farsíma- og spjaldtölvulausna kostur
- Umtalsverð þekking og reynsla af forritun vefja. Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði, kerfisfræði eða sambærileg menntun kostur
- Reynsla eða áhugi á að tileinka sér „adaptive web design“ og aðra nýjustu veftækni.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum
- Mjög gott vald ensku
Prófana- og gæðastjóri
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði, kerfisfræði, sambærileg menntun eða umtalsverð starfsreynsla
- Umtalsverð reynsla af gæðastjórnun eða prófunum í hugbúnaðargerð og yfirgripsmikil þekking á faginu
- Gott auga fyrir nytsemi hugbúnaðar og vefviðmóti og hæfni til að geta sett sig í spor notenda
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð, metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum
- Mjög gott vald ensku
Kerfisstjóri
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla og yfirgripsmikil þekking á Microsoft umhverfi, uppsetningu hugbúnaðar og vélbúnaðar nauðsynleg og þekking á gagnagrunnum og rekstri kerfa kostur
- MCTS, MCITP eða sambærileg prófskírteini kostur
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum
- Mjög gott vald ensku
Við lofum:
- Spennandi og krefjandi hugbúnaðarverkefnum
- Tækifæri til að læra, vaxa og þroskast í starfi
- Fjölskylduvænu og góðu vinnuumhverfi
- Skemmtilegum vinnustað
- Góðum launum og kaupréttum

