Ársskýrsla Markaðsvaktarinnar
Ársskýrsla Markaðsvaktar Meniga sýnir þróun markaðshlutdeildar þíns fyrirtækis í samanburði við valda keppinauta síðastliðna 24 mánuði.
Hér getur þú skoðað sýnishorn af Ársskýrslunni.
Ársskýrsla Markaðsvaktarinnar á sérstöku kynningarverði
Við hjá Meniga vorum að ljúka við þróun á Ársskýrslu Markaðsvaktar Meniga sem sýnir þróun markaðshlutdeildar þíns fyrirtækis í samanburði við valda keppinauta síðastliðna 24 mánaða. Skýrslan byggir á ópersónugreinanlegum raungögnum um viðskipti yfir 30 þúsund einstaklinga úr Meniga samfélaginu og veitir því alveg einstaka sýn á samkeppnisstöðu á íslenskum markaði. Þínu fyrirtæki býðst að velja allt að sex fyrirtæki til samanburðar og sjá meðal annars:
- Þróun markaðshlutdeildar og frávik á milli ára
- Heildar markaðshlutdeild, sölu, fjölda viðskiptavina og fjölda viðskiptafærslna fyrir þitt fyrirtæki og helstu keppinauta
- Fjölda og hlutfall nýrra, tryggra og tapaðra viðskiptavina fyrir síðustu 6 mánuði í samanburði við síðustu 6 mánuði þar á undan
- Meðalkörfu og meðal lengd á milli viðskipta hjá viðskiptavinum þínum og keppinautanna
- Kynja- og aldursdreifingu hjá þínu fyrirtæki og keppinautunum
Þar sem um nýja vöru er að ræða verður hún á sérstöku kynningarverði hjá okkur fyrst um sinn eða 85.000 kr. + vsk.
Um Árskýrsluna
Úrtakið telur kortafærslur yfir 30 þúsund einstaklinga sem standast kröfur Meniga um gagnagæði, s.s. samfellda viðskiptasögu yfir allt tímabilið
Meniga hefur upplýsingar um aldur og kyn u.þ.b. 65% úrtaksins
Gögn í skýrslunni byggja á kortafærslum íslenskra debit- og kreditkorta en ná ekki til peningaviðskipta eða erlendra korta.
Samstarfsaðilar Meniga
Hvernig getum við hjálpað þínu fyrirtæki að ná mikilvægu samkeppnisforskoti?
Vinsamlegast fylltu út formið hér til hliðar eða sendu okkur póst á netfangið sala@meniga.is og segðu okkur hvernig við getum aðstoðað fyrirtæki þitt.
Þú getur óskað eftir fundi með sölufólki okkar, fengið senda kynningu á markaðsvaktinni og endurgreiðslutilboðum Meniga eða pantað sýnishorn.