Simon Shorthose nýr forstjóri Meniga 

Meniga hefur ráðið Simon Shorthose í starf forstjóra en hann tekur við af Georg Lúðvíkssyni, meðstofnanda Meniga og forstjóra til fjórtán ára.

Nú eru mikil tímamót hjá Meniga þar sem Georg Lúðvíksson, meðstofnandi Meniga og forstjóri til 14 ára, hefur ákveðið að stíga til hliðar. Í hans stað hefur Meniga ráðið Simon Shorthose sem er reynslumikill leiðtogi í fjártæknigeiranum.

"Eftir 14 spennandi en krefjandi ár hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem forstjóri Meniga. Ég hef fylgst með árangri Simon í stjórnunarstörfum af fyrstu hendi og treysti honum fullkomlega til að leiða fyrirtækið áfram í þeirri alþjóðlegu vegferð sem fyrirtækið hefur verið á undanfarin ár. Félagið hefur vaxið hratt víða um heim og það er mikill fengur að fá svona reynslumikinn stjórnenda til Meniga."

Ég þakka vinum, samstarfsfólki og viðskiptavinum Meniga kærlega fyrir þeirra samstarf og traust í mínu starfi sem forstjóri Meniga

Georg Lúðvíksson, fráfarandi forstjóri Meniga

Meniga var stofnað af Georg Lúðvíkssyni, Ásgeiri Erni Ásgeirssyni og Viggó Ásgeirssyni árið 2009. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið gríðarlega undir leiðsögn Georgs og eru hugbúnaðarlausnir Meniga nú notaðar af rúmlega 100 milljón viðskiptavinum yfir 170 banka um allan heim. Meðstofnendur Georgs munu áfram gegna framkvæmdastjórastöðum hjá Meniga.

“Við meðstofnendur Georgs þökkum honum kærlega hans ómælda vinnuframlags í þágu Meniga. Án hans einstaka frumkvöðlakrafts hefði fyrirtækið ekki náð eins langt og raun ber vitni. Við bjóðum Simon hjartanlega velkominn og hlökkum til að vinna með honum að áframhaldandi vexti Meniga,” segja Viggó og Ásgeir.

F.h. Georg, Ásgeir og Viggó.

Simon Shorthose hefur 20 ára reynslu af stjórnunarstörfum í hugbúnaðar- og fjármálageirunum. Hefur hann meðal annars gegnt stjórnunarstöðum hjá fjártæknifyrirtækinu Kyriba og hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Mambu sem þróar lausnir fyrir banka. Því er Simon mikill fengur fyrir Meniga.  

"Meniga er eitt af þeim fyrirtækjum sem vaxið hefur mest á sínu sviði á síðustu árum. Það er mér mikill heiður að taka við sem forstjóri félagsins. Stafræn væðing undanfarinna ára hefur gjörbreytt bankaumhverfinu og Meniga er í fullkominni stöðu til að hjálpa bönkum að takast á við þær breytingar," segir Simon.

Það eru virkilega spennandi tækifæri framundan og ég vil þakka Georg fyrir traustið.

Simon Shorthose

Um leið og við bjóðum Simon hjartanlega velkominn þökkum við Georg kærlega fyrir ómetanlegt framlag sitt til Meniga og ótal samverustundir undanfarin ár. Georg mun halda áfram að styðja við vöxt fyrirtækisins sem hluthafi Meniga.