Hvað kostar að ferma? 

Hér förum við yfir hvernig Meniga nýtist til að halda utan um útgjöldin á einfaldan hátt.

Ferming er stór viðburður í lífi fjölskyldunnar en getur líka verið stór útgjaldaliður. 

En hvað kostar eiginlega að ferma í dag og hvernig er best að halda utan um allt saman?
Í þessari grein munum við fara yfir helstu kostnaðarliði sem þarf að hafa í huga fyrir fermingu 
og hvernig má nýta Meniga til að halda utan um útgjöldin á einfaldan hátt.  

Helstu kostnaðarliðir í fermingu 

Þegar halda á veislu af þessari stærðargráðu er auðvelt að missa yfirsýnina yfir heildarkostnaðinn. Kostnaðurinn dreifist oft yfir langan tíma, í margar litlar færslur og áður en maður veit af er heildartalan kannski orðin hærri en búist var við. Heildarkostnaður við fermingu ræðst að miklu leyti af umfangi veislunnar og fjölda gesta en smærri útgjöld geta einnig lagst hratt saman. 

Matur og salur er iðulega stærsti útgjaldaliðurinn en hann er mjög breytilegur eftir fjölda gesta. Aðrir liðir eru hins vegar oft fastari þegar kemur að fermingu og við reyndum að setja fram raunsæ verð miðað við Ísland í dag. Hér að neðan er tafla með algengum kostnaðarliðum sem fylgja fermingu. 

Hvað kostar að ferma

Hvernig færðu betri yfirsýn yfir fermingarkostnaðinn? 

  1. Tengdu reikningana þína við Meniga – það kostar ekkert! 
    Meniga er bæði á vef og í símanum (iOS og Android). Hægt er að tengja reikninga og kort frá Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka og þegar kortið er tengt safnast allar færslur sjálfkrafa inn. Þú getur einnig samtengt reikninga og kort maka og þannig fengið yfirsýn yfir öll fjármál á einum stað. 

  2. Búðu til merkimiða: #ferming2026 
    Með merkimiðum geturðu merkt allar færslur sem tengjast fermingunni með nafni að eigin vali, til dæmis #ferming2026, og séð kostnað þvert á flokka á einum stað. Þú getur líka bætt við handvirkt færslum ef eitthvað er greitt með reiðufé og einnig er hægt að endurflokka aðrar færslur eftir því sem hentar. 

  3. Sjáðu yfirlit yfir kostnaðinn við ferminguna 
    Því næst geturðu kallað fram sjálfvirka skýrslu yfir merkimiðann sem sýnir heildarkostnað fermingarinnar, hvernig kostnaðurinn dreifðist yfir tíma og  hvaða flokkar voru dýrastir.  
Meniga heimilisbókhald

Þessi aðferð nýtist líka fyrir aðrar stórar veislur eins og brúðkaup, skírn, afmæli eða aðra viðburði af svipaðri stærðargráðu. Að hafa skýra yfirsýn yfir kostnaðinn gerir skipulagið einfaldara og dregur úr stressi í kringum undirbúninginn. 

Hér fyrir neðan eru nokkur sparnaðarráð sem gott er að hafa í huga: 

Sparnaðarráð

Spurt & Svarað 

  1. Hvað er fermingarkostnaður?  
    Fermingarkostnaður nær yfir þau útgjöld sem falla til við undirbúning og það að halda fermingarveislu. Að ferma getur innihaldið kostnað yfir langan tíma sem gerir það að verkum að kostnaðarliðir eru dreifðir yfir langt tímabil og því erfiðara að halda yfirsýn. Kostnaðurinn er mjög breytilegur eftir umfangi og fjölda gesta. 
     
  2. Hvernig nýtist Meniga?  
    Meniga er heimilisbókhaldslausn sem veitir yfirsýn yfir útgjöld heimilisins. Hægt er að flokka kostnað og fá skýra mynd af því hvað hlutir eins og stórir viðburðir kosta í raun. Ertu að fara að ferma eða gifta þig í sumar? Hvað kostar að halda brúðkaup? Þetta eru spurningar sem margir leita svara við og Meniga getur hjálpað til við taka saman kostnað á einfaldan og þægilegan hátt. 
     
  3. Hvernig fæ ég yfirsýn með Meniga?  
    Með því að tengja kort og búa til merkimiða eins og #ferming2026 og merkja allar færslur færðu sjálfvirka yfirsýn yfir heildarkostnaðinn án þess að halda utan um kvittanir eða nota Excel skjöl.