Spurt og svarað

Hér má finna svör við þeim spurningum sem við höfum fengið frá notendum Meniga í gegnum tíðina.

Við reynum að svara spurningum næsta virka dag og gerum stöðugar endurbætur sem byggja á ábendingum notenda. Ef þú hefur einhverjar spurningar skalt þú ekki hika við að hafa samband á hjalp@meniga.is.

Skoða myndbönd

Almennt um Meniga

Stillingar

Hvernig tengi ég reikninga og kort maka við Meniga?

Við mælum með því að sambýlisfólk noti Meniga saman og fái þannig yfirsýn yfir öll fjármál heimilins á einum stað. Ef þú vilt fá aðgang að reikningum maka þurfa báðir aðilar að vera skráðir notendur á Meniga.is.

Til að samtengja notendur velur þú Stillingar > Notandi. Þar velur þú "Sameina við annan Meniga notanda" og slærð inn netfang maka og lykilorð maka. Loks slærð þú inn þitt aðgangsorð í Meniga og staðfestir. Þá birtast öll kort og reikningar heimilsins á sameiginlegum aðgangi ykkar í Meniga.

Athugaðu að eins og er er aðeins hægt að samtengja notendur á vefnum en ekki í Meniga appinu. 

Hvers vegna þurfum ég og maki minn að vera með sitthvorn Meniga aðganginn ef við viljum hafa öll fjármálin á einum stað?

Við mælum ávallt með því að þú og maki þinn stofnið ykkar eigin Meniga aðgang, bætið ykkar reikningum við ykkar aðgang og samtengið svo notendurna til þess að vera með fjármálin á einum stað frekar en að tengja alla reikninga við einn stakan aðgang. Þetta er vegna þess að ef þið viljið ekki að maki ykkar hafi aðgang að reikningunum ykkar lengur, t.d. ef um skilnað er að ræða, þá er einfaldlega hægt að rjúfa tenginguna. 

Get ég slegið inn tekjur og útgjöld sem greidd hafa verið með reiðufé?

Já, þú getur slegið inn færslur sem ekki koma fram á reikningum þínum eða kortum, t.d. þegar þú færð tekjur í reiðufé og útgjöld á móti þegar þú notar peningana. Innslegnar færslur eru sýndar sem færslur á sérstökum reikningi sem kallast „Veski“. Þú skráir nýja færslu með því að velja stóra rauða plúsinn uppi hægra megin undir flipanum „Færslur“.

Hvernig breyti ég netfangi og lykilorði?

Þú velur flipann Stillingar og Notandi. Þar býðst þér að breyta netfangi og/eða lykilorði.

Get ég tengt alla reikninga og kort við Meniga?

Hægt er að tengja alla reikninga og kort frá Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka við Meniga. Við höfum þó alltaf áhuga á því að bæta öðrum bönkum við, en sú ákvörðun liggur hjá bönkunum sjálfum.

Hvað eru reglur?

Reglur er virkni sem vaktar nýjar færslur sem koma inn í Meniga og bera þær saman við skilyrði sem þú setur. Út frá settum skilyrðum vinnur Meniga með færslurnar og breytir þeim fyrir þig. Eigindi sem hægt er að breyta með reglum eru t.d. dagsetning, merkimiðar, flokkun o.s.frv en einnig er hægt að skipta færslum með reglum milli tveggja eða fleiri flokka.

Hvernig eyði ég Meniga aðganginum mínum?

Til að eyða aðganginum þínum að Meniga ferðu inn í Stillingar > Notandi og þar er þér boðið upp á að eyða aðganginum þínum.

Þegar ég eyði aðganginum mínum að Meniga er þá öllum mínum gögnum eytt í leiðinni?

Já, öllum gögnum notanda er eytt.

Hvernig aftengi ég samtengdan Meniga aðgang?

Ef þú og maki þinn viljið ekki lengur hafa aðganga ykkar samtengda, t.d. þegar um skilnað eða sambandsslit er að ræða, þá þarft þú að aftengja aðgangana í stillingum Meniga. Þá verður öllum þínum gögnum eytt samstundis úr Meniga aðgangi fyrrverandi maka og það sama gerist með þinn aðgang. Vegna öryggis- og persónuverndarástæðna banka gerist þessi aftenging ekki sjálfkrafa.

Ég fæ of mikið af tilkynningum hvernig breyti ég því?

Til að stilla af hversu mikið af tilkynningum þú færð þá ferð þú í Stillingar og þar undir í Tilkynningar þar sem þú getur ráðið hversu mikið af tilkynningum þú færð.

Hvað geri ég ef ég gleymi lykilorðinu mínu?

Þú smellir á Innskráning efst í hægra horni og þá opnast innskráningarglugginn. Næst smellir þú á tengilinn "Gleymt lykilorð", neðst í innskráningarglugganum, slærð inn netfangið sem þú notar til að skrá þig inn í Meniga og færð þá sendan tölvupóst með leiðbeiningum um hvernig þú býrð til nýtt lykilorð.

Færslur

Af hverju birtast sumar færslur í röngum flokki?

Flest fyrirtæki og stofnanir eru flokkuð eftir því hver aðalstarfsemi þeirra er. Þegar fyrirtæki eða stofnun rekur margs konar starfsemi, t.d. verslun sem selur bæði matvöru og fatnað, getur verið erfitt að finna einn flokk sem lýsir allri starfseminni. Ef færsla er rangt flokkuð þarft þú að færa hana í réttan flokk. Það gerir þú með því að smella á flokkinn og velja nýjan flokk. Meniga man breytingar sem gerðar eru á sjálfvirkri flokkun og aðlagast þannig neyslumynstri þínu.

Get ég fært færslur á milli flokka?

Já, þú gerir það með því að velja „Færslur“ í aðlavalmynd, finnur færsluna sem þú vilt færa á milli flokka, smellir á flokkinn og velur nýjan flokk. Efst birtast þeir flokkar sem kerfið telur líklegasta.

Get ég eytt færslum úr Meniga?

Já, það gerir þú með því að velja „Færslur“ í aðalvalmynd. Þú finnur færsluna sem þú vilt eyða, hakar í boxið vinstra megin við hana og smellir á ruslatunnuna. Athugið að ekki er hægt að afturkalla færslu sem hefur verið eytt.

Ef þú vilt sleppa færslu úr bókhaldi án þess að eyða henni velur þú flokkinn „Sleppa úr bókhaldi“.

Get ég aftur kallað fram færslu sem ég hef eytt?

Nei, það er ekki hægt en þú getur alltaf fundið færslu sem þú hefur eytt í netbankanum þínum og handslegið hana aftur inn í Meniga með því að velja liðinn „Færslur“ í aðalvalmyndinni og smella þar á rauða plúsinn efst hægra megin.

Af hverju er strikað yfir sumar færslur hjá mér?

Ef strikað er yfir færslu reiknast hún ekki með í bókhaldi. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að færslur milli eigin reikninga og innborganir á greiðslukort verði tvítaldar. Færslur sem þú hefur valið að sleppa úr bókhaldi eru einnig yfirstrikaðar.

Bókhald

Bókhald gefur ekki rétta mynd af stöðu minni, hvað veldur því?

Líklegasta ástæðan er sú að laun, sem tilheyra næsta mánuði, hafi verið greidd út fyrir mánaðarmót, það sama getur átt við um ýmis útgjöld, þ.e. að þau hafi verið greidd í öðrum mánuði en þau tilheyra.

Aðrar spurningar

Kostar eitthvað að nota Meniga?

Nei, þú færð aðgang að Meniga þjónustunni endurgjaldslaust.

Hvernig fær Meniga tekjur?

Meniga fær fyrst og fremst tekjur með tvenns konar hætti:

Í fyrsta lagi með því að semja við fjármálastofnanir, oftast banka, um afnotagjöld af hugbúnaði Meniga. Þessir bankar geta boðið netbankanotendum sínum að nýta alla helstu virkni Meniga. Lang stærstur hluti tekna Meniga kemur frá erlendum bönkum sem hafa keypt hugbúnað Meniga.

Í öðru lagi fær Meniga tekjur með því að semja við fyrirtæki um að veita notendum Meniga sérsniðin endurgreiðslutilboð sem Meniga telur að þjóni hagsmunum sinna notenda. Meniga fær þóknun frá fyrirtækjum fyrir þau endurgreiðslutilboð sem notendur Meniga.is nýta sér og fyrir að veita fyrirtækjum aðgang að ópersónugreinanlegum samantektum úr kerfum Meniga sem sýna neysluhegðun notenda.

Öryggi og persónuvernd

Öryggi og persónuvernd

Sjá nánar:

Öryggis- og persónuverndarstefna Meniga

Er þetta öruggt?

Meniga starfar í dag í rúmlega 30 löndum og fleiri en 90 milljónir notenda hafa aðgang að kerfum Meniga í gegnum 165 fjármálastofnanir. Vöxt Meniga má meðal annars rekja til ofuráherslu á öryggi við meðhöndlun gagna og að persónugreinanlegar upplýsingar verði aldrei afhentar þriðja aðila. Þá má nefna að Meniga fylgir að minnsta kosti jafn ströngum öryggisreglum og bankar á Íslandi og í raun öruggari þar sem ekki er hægt að framkvæma millifærslur af bankareikningum í Meniga, einungis fá yfirlit og yfirsýn yfir heimilisfjármálin.

Getur einhver annar en ég komist í upplýsingar mínar á Meniga?

Nei, gagnaöryggi er tryggt með margvíslegum hætti á vef Meniga. Í fyrsta lagi er Meniga vefurinn tæknilega eins öruggur og vefir fjármálastofnana. Í öðru lagi veit Meniga ekki hver notandinn er (biður ekki um persónugreinanlegar upplýsingar). Í þriðja lagi hefur Meniga eingöngu lesaðgang að reikningum notenda þannig að ekki er hægt að framkvæma neinar fjárhagslegar færslur á Meniga.is. Í fjórða lagi ábyrgist Meniga meðferð allra upplýsinga um notendur.

Lenda mín gögn í höndum þriðja aðila?

Nei. Það mun aldrei gerast. Allar greiningar eru gerðar með ópersónugreinanlegum hætti. Fyrirtæki fá aldrei og munu aldrei fá upplýsingar frá Meniga sem hægt er að rekja til einstakra notenda (þær eru ávallt ópersónugreinanlegar). Fyrirtæki fá þessar ópersónugreinanlegu samantektir til að vita hversu margir nýttu sér endurgreiðslutilboð sem fyrirtæki bjóða. Fyrirtækjum stendur einnig til boða að kaupa ópersónugreinanlegar samantektir og yfirlit yfir neysluhegðun í Meniga kerfinu.

Endurgreiðslutilboð

Almennt

Hvaðan kemur endurgreiðslan?

Endurgreiðslan kemur í gegnum Endurgreiðslutilboð ehf. Nánari svör veita starfsmenn Meniga í gegnum netfangið hjalp@meniga.is

Hvað eru Endurgreiðslutilboð?

Í Meniga færð þú sérsniðin endurgreiðslutilboð og getur með því fengið hluta af þínum útgjöldum endurgreidd.

Hvað þarf ég að gera til að fá tilboð?

Til að geta fengið tilboð þarft þú að tengja alla helstu reikninga og kort við Meniga. Tilboðin munu birtast þér á vef meniga.is og í appinu. Ef þú hefur áhuga á að nýta þér tilboðið virkjar þú það og ert í kjölfarið beðin(n) um að samþykkja skilmála, hafir þú ekki gert það þegar. Síðan verslar þú þar sem tilboðið á við og færð endurgreiðsluna greidda inn á reikning að eigin vali. Í stuttu máli: þú virkjar, verslar og færð endurgreitt.

Hvernig virka tilboðin í Meniga?

Endurgreiðslutilboðin eru sérsniðin tilboð sem notendur Meniga geta nýtt sér í þremur einföldum skrefum:

1. Þú virkjar tilboð sem birtist í Meniga – afslátturinn gildir fyrir öll þín kort sem eru skráð í Meniga.

2. Greitt er fullt verð við kassann þegar þú verslar – þarft ekkert að klippa út, muna eftir eða sýna. Starfsfólk þarf ekki að vita að þú sért með virkt tilboð.

3. Afslátturinn endurgreiðist 18. hvers mánaðar til notenda – þú sérð afsláttinn hlaðast upp í Meniga og færð uppsafnaðan afslátt frá 22.-21. mánaðarins á undan millifærðan á bankareikninginn þinn. Eina sem þarf að passa er að virkja tilboðið og slá inn endurgreiðslureikning.

Inneignin mín og endurgreiðsla

Fyrnist inneignin mín?

Við reynum að gera allt sem við getum til að svo verði ekki. Við sendum notendum sjálfkrafa endurgreiðslu 18. hvers mánaðar að því gefnu að notandi hafi skráð inn bankareikning og kennitölu. Takist endurgreiðsla ekki á tilsettum tíma, t.d. vegna þess að bankareikningur er ekki lengur til staðar, mun Meniga leita leiða til þess að hafa upp á notandanum með öðrum hætti og greiða féð til viðkomandi. Gangi það ekki eftir mun Meniga varðveita féð eins og almennar reglur um fyrningu segja til um.

Ég er að flytja inn færslur í Meniga með því að hlaða þeim inn ‘handvirkt’. Geta handvirkar færslur safnað endurgreiðslu?

Nei, skjöl sem innihalda færslur sem er 'hlaðið niður’ af vefsvæði banka og síðan ‘hlaðið upp’ á vefsvæði Meniga eru ekki gjaldgengar til að safna endurgreiðslu. Sama á við um ‘Veskis’ færslur sem eru útbúnar af notendum sjálfum í kerfinu.

Ef ég nýti mér tilboð - fæ ég alltaf endurgreitt?

Meniga gerir samning við öll fyrirtæki um afslátt sem þau greiða til notenda. Í mörgum tilfellum borga fyrirtæki fyrirfram en í öðrum er samið um að greiða miðað við nýtingu á endurgreiðslutilboðum. Ef samið er um að greiða eftir nýtingu og fyrirtæki neitar að greiða notendum til baka afslátt sem þeir hafa samið um að veita mun Meniga beita öllum tiltækum leiðum fyrir hönd notenda sem líklegar eru til árangurs, til þess að innheimta féð frá viðkomandi söluaðila komi til þess og upplýsa viðkomandi notendur um framgang mála í slíkum tilfellum, eins og unnt er.

Hvað verður um tilboðin mín ef ég hætti í Meniga? Sérstaklega þau tilboð sem ég hef virkjað og safnað endurgreiðslu á?

Þegar þú eyðir þínum notanda eyðir Meniga öllum tengingum þínum við banka, öllum reikningum, færslum sem og öðrum stillingum. Öllum tilboðum verður því eytt. Til að standa við útgreiðslu afsláttar og til að geta gefið upplýsingar um hvaða greiðslufyrirmæli voru gefin til að greiða út afslátt, mun Meniga halda eftir upplýsingum sem tengja söfnun í tilboðum við greiðslufyrirmæli og endurgreiðslureikninga.

Þetta er auk þess nauðsynlegt til að geta greitt út afslátt eftir að notandi yfirgefur kerfið. Þessar upplýsingar eru geymdar eins lengi og bókhaldslög kveða á um. Þegar notandi hættir og á inni endurgreiðslu er því nauðsynlegt að hann aðgæti að hann hafi gefið upp endurgreiðslureikning því án hans getur reynst erfitt að greiða út áunna endurgreiðslu.

Safna færslur, sem ekki eru komnar inn þegar tilboði lýkur, endurgreiðslu?

Já, það er í lagi að færslur komi inn nokkrum dögum eftir að tilboð lýkur svo framarlega sem að færsludagsetning þeirra sé innan tímamarka tilboðsins.

Hvað ef ég bæti við korti í Meniga meðan á tilboði stendur, safna ég þá endurgreiðslu á þær færslur sem eiga við á því korti?

Nei. færslur af öllum gjaldgengum kortum eru einungis teknar til greina ef kortin voru tengd við Meniga áður en færsla átti sér stað. Það er því mikilvægt að tengja kort við Meniga um leið og þú færð þau.

Hverjir fá hvaða tilboð?

Get ég fengið sama endurgreiðslutilboð og vinur minn fékk?

Hugsanlega. Þú getur aukið líkurnar á að fá góð endurgreiðslutilboð með því að skrá öll kortin þín og reikninga í Meniga. Við getum ekki lofað að þú fáir nákvæmlega sama endurgreiðslutilboð og vinur þinn en ef þú ert með svipaða neyslusögu og hann ættir þú að fá sambærileg tilboð. Til frekari útskýringa þá mun Meniga nálgast fyrirtæki og bjóða þeim að veita ólíkum neysluhópum endurgreiðsluafslætti sem passa við neyslumynstur þeirra. Í sumum tilfellum eru fyrirtæki reiðubúin að gefa einungis örfáum notendum slík tilboð en í öðrum tilfellum mun fleiri.

Hvað þarf ég að gera til að teljast “tryggur viðskiptavinur” hjá verslun til að fá endurgreiðslutilboð?

Ef þú verslar oft og mikið hjá tiltekinni verslun telst þú vera tryggur viðskiptavinur. Það getur verið misjafnt eftir verslunum eftir því hversu oft og mikið aðrir versla hjá sömu verslun hversu tryggur viðskiptavinur þú ert talin vera samkvæmt Meniga.

Vinur minn fær miklu betra endurgreiðslutilboð í fataverslun sem ég versla miklu oftar í en hann, hvernig má það vera?

Í öllum endurgreiðslutilboðum hjá Meniga sést hvers vegna viðkomandi aðili er að fá viðkomandi afslátt. Í mörgum tilfellum eru fyrirtæki reiðubúin að veita neytendum sem hafa sjaldan eða aldrei verslað hjá þeim mikinn afslátt í takmarkaðan tíma til að auka líkurnar á því að þeir prófi þeirra verslun. Að sama skapi eru góðar líkur á því að aðrar fatabúðir sem þú verslar ekki við reyni að keppa um þín viðskipti og bjóða þér háan afslátt.

Fyrirtæki sem bjóða afslætti

Hvaða fyrirtæki bjóða notendum Meniga.is endurgreiðslutilboð?

Öllum fyrirtækjum býðst að veita notendum Meniga.is sérstök endurgreiðslukjör að því gefnu að Meniga telji það þjóna hagsmunum notenda.

Þarf ég að sýna starfsfólki eitthvað í verslun sem veitir afslátt?

Nei. Þú þarft ekki að sýna neinum að þú sért með endurgreiðslutilboð í verslun og það er ekki einu sinni víst að afgreiðslufólk verslunarinnar viti af því að verslunin hafi boðið endurgreiðslutilboð. Þú einfaldlega virkjar, verslar og færð endurgreitt. Alltaf þegar þú kaupir verður til færsla sem birtist í netbankanum þínum og Meniga. Þegar færslan kemur inn í Meniga sérð þú hversu mikill afsláttur er endurreiknaður og hvenær hann verður millifærður á reikninginn þinn. Almennt birtast debetkortafærslur í rauntíma (strax) en það getur tekið nokkra daga að fá kreditkortafærslur inn í bæði netbankann og Meniga.

Tenging við maka og endurgreiðsla

Við kona mín erum tengd í Meniga, getum við bæði nýtt afsláttinn?

Já. Litið er á notendur sem eru tengdir í Meniga sem einn notanda þegar kemur að endurgreiðslutilboðum. Ef þið konan þín fáið endurgreiðslutilboð er það vegna þess að sameiginleg útgjöld ykkar falla að skilyrðum um neyslumynstur sem fyrirtæki hefur ákveðið að veita endurgreiðslutilboð. Það þýðir að hvort sem notað er kort skráð á þig eða konuna þína til að versla hjá fyrirtækjum sem veita afslátt, hleðst afslátturinn sameiginlega upp í eina eingreiðslu sem er greidd út mánaðarlega. Ef þið væruð ekki tengd saman í Meniga er óvíst að þið þið fengjuð áfram sömu endurgreiðslutilboð þar sem þið félluð ekki endilega undir sama neyslumynstur.

Aðrar algengar spurningar

Nú er misdýrt að versla hjá fyrirtækjum og þó að fyrirtæki bjóði endurgreiðslu þýðir það að ég spari alltaf með því að nýta mér tilboð?

Meniga kappkostar að bjóða þér tilboð sem hjálpa þér að spara. Í einhverjum tilfellum gætu þér þó boðist afslættir frá verslunum sem selja varning með hærri álagningu en þær verslanir sem þú verslar þegar hjá og því ekki öruggt að þú sparir með því að færa þín viðskipti yfir til þeirra. Við leggjum mikið upp úr því að heyra upplifanir frá okkar notendum. Ef þú hefur fengið tilboð sem þú telur ekki hafa verið þér til hagsbóta viljum við gjarnan heyra frá þér og reyna að skilja betur hvernig við getum betrumbætt þjónustuna.

Hvers vegna ætti ég ekki að virkja öll tilboð sem mér eru boðin?

Þú ættir að sjálfsögðu að gera það, ef þau eiga við þig sem er alltaf okkar markmið. Það fylgir því auk þess engin skuldbinding að virkja tilboð. Ef þú sérð ekki fyrir þér að nota tiltekið tilboð eða hefur ekki áhuga á viðkomandi fyrirtæki getur þú hafnað tilboðinu eða látið það einfaldlega renna út. Það hjálpar okkur að læra meira af kerfinu og veita þér meira viðeigandi tilboð.

Ég hafnaði óvart tilboði, hvað get ég gert?

Það er einfalt, þú einfaldlegar virkjar það, svo framarlega sem það hefur ekki runnið út.

Get ég fengið afslátt í verslunum utan Íslands?

Nei, einungis færslur hjá íslenskum fyrirtækjum munu safna endurgreiðslu, nema annað sé tekið fram.

Örmyndbönd

Tilboð

Flokkun færslna

Breyta dagsetningu

Áskoranir

Stöðumælir

Skipta færslu

Merkimiðar

Fannstu það sem þú varst að leita að?

Hafðu samband