Það getur reynst flókið að byrja en fljótlega lærir Meniga á það hvernig þú vilt flokka færslurnar þínar og þú uppskerð einfalda yfirsýn yfir heimilisfjármálin í framhaldinu.
Að tengja reikninga
Það er mikilvægt að ákveða hvaða yfirsýn þú vilt fá í Meniga og tengja reikninga í samræmi við það. Fyrir mitt leyti hef ég einungis tengt debet- og kreditkortareikninga við Meniga. Þar sem ég greiði öll föst útgjöld líkt og lána- og tryggingakostnað með sparnaðarreikningum er sá kostnaður undanskilinn yfirlitinu. Yfirlitið inniheldur því einungis almenna neyslu sem eru þá aftur á móti þau útgjöld heimilisins sem auðveldast er að hafa áhrif á til styttri tíma.
Þetta er hins vegar persónubundið, þar sem aðrir gætu viljað fylgjast með sparnaðinum sínum vaxa í Meniga og þá getur verið upplagt að tengja sparnaðarreikningana líka.
· Þú getur tengt reikninga við Meniga með því að skrá þig inn og fara í Stillingar > Reikningar > Bæta nýjum reikningi við
Sameiginleg yfirsýn
Ef þú og maki viljið vera með sameiginlegt yfirlit yfir heimilisfjármálin er lítið mál að sameina tvo Meniga aðganga. Það er gert með því að fara í Stillingar > Notandi > Sameina við annan Meniga-notanda, t.d. maka.
· Athugið að báðir aðilar þurfa að tengja sína eigin reikninga við sitthvorn Meniga aðganginn. Eftir að þið hafið sameinað aðgangana ykkar fá báðir aðilar yfirsýn yfir tekjur og útgjöld heimilisins
Að flokka færslur
Nú hefst fjörið. Ég ráðlegg þeim sem eru með nýstofnaðan aðgang, eða hafa ekki skráð sig lengi inn í Meniga að yfirfara kortafærslur síðustu vikna. Þetta er þægilegt að gera á færsluyfirlitinu með því að velja Færslur.
Þetta þarf ekki að vera ítarleg yfirferð þar sem Meniga ætti nú þegar að hafa flokkað algengustu færslurnar. Þú getur þá farið yfir óflokkaðar færslur, sem ættu að vera merktar gular, og flokkað þær í þá flokka sem þér finnst eiga við.
- Meniga lærir svo með tímanum á það hvernig þú kýst að flokka færslur. Þetta krefst því aðeins vinnu til að byrja með sem skilar sér svo á endanum í þægilegu flokkunarkerfi eftir þinni hentisemi
Reglur einfalda vinnuna
Ég hef tekið saman tvær reglur sem einfalda þér flokkunarvinnuna. Sú fyrri snýr að því að undanskilja greiðslur milli eigin reikninga frá yfirlitinu svo þær hafi hvorki áhrif á tekjur né útgjöld í áætluninni. Seinni reglan sér til þess að launagreiðslur birtast í réttum mánuði svo útreikningur fyrir hvern mánuð stemmi.
· Þú getur búið til reglu með því að fara í Stillingar > Reglur > Búa til nýja reglu.
Fyrri reglan kemur í veg fyrir að millifærslur af sparnaðarreikningum og inn á debetkort eða greiðslur kreditkortareikninga teljist til tekna eða útgjalda. Það er mikilvægt að flokka þessar færslur í flokka sem eru undanskildir öllum útreikningum í Meniga.
· Dæmi um slíka flokka eru: innborgun á greiðslukort, millifærslur milli eigin reikninga og sleppa úr bókhaldi
· Regla sem flokkar innborganir á debetkortareikninga í flokkinn innborgun á greiðslukort myndi líta svona út:

Slíkar millifærslur birtast undir heitinu „innborgun“ á færsluyfirlitinu í Meniga. Við getum þá búið til reglu sem segir flokkunarkerfinu að allar færslur undir tilteknu heiti skulu flokkast sem Innborgun á greiðslukort. Þær eru þar með leiðandi undanskildar öllum útreikningum í heimilisbókhaldinu. Mikilvægt er að haka við það að reglan gildi einnig um allar fyrirliggjandi færslur svo eldri færslur verði einnig undanskildar heimilisbókhaldinu.
Í framhaldinu ættu allar þessar færslur að líta svona út á færsluyfirlitinu:

Þó svo að færslurnar birtist á yfirlitinu, þá telja þær ekki til útreiknings á tekjum eða útgjöldum í áætluninni hjá þér.
Regla til að undanskilja greiðslur kreditkortareikninga úr bókhaldinu væri þá eins uppsett, nema heiti færslunnar væri líklegast „Millifært: (nafnið þitt)“.
Seinni reglan. Ef laun eru reglulega greidd einhverjum dögum fyrir mánaðarmót, þá hafa þau áhrif á útreikning þess mánaðar sem þau greiðast út í. Það er því æskilegt að útbúa reglu sem sér um að hliðra dagsetningu launagreiðslunnar yfir á næsta mánuð.
· Regla sem hliðrar launagreiðslunni yfir á næsta mánuð myndi líta svona út:

Reglan skal innihalda heiti færslunnar (sem er í mínu tilfelli Meniga). Mikilvægt er svo að setja regluna upp þannig að þegar kerfið finnur færslu þar sem dagsetning færslunnar er á síðustu 5 dögum mánaðarins skal kerfið hliðra dagsetningu hennar fram yfir næstu mánaðarmót. Þú hakar svo við að reglan skuli gilda um fyrirliggjandi færslur til að hliðra öllum eldri launafærslum yfir á réttan mánuð.
Þú uppskerð í áætluninni
Þegar mesta flokkunarvinnan er yfirstaðin ætti áætlunin að sýna að mestu leyti raunhæfa mynd. Ef þú ferð í Áætlun færðu yfirlit fyrir hvern mánuð niður á útgjalda- og tekjuflokka.
Þú getur þá séð hvaða færslur reiknast inn í hvaða flokk með því að velja útreiknaða samtölu fyrir hvern undirflokk.
- Það er þá hægt að flokka færslur í viðeigandi flokka inni í áætluninni. Þú velur þá hvern undirflokk fyrir sig og þar getur þú breytt flokkun eða skipt upp færslum eftir þörfum
Í framhaldinu þarf þetta ekki að taka lengri tíma en hálfa kvöldstund einu sinni í lok hvers mánaðar til að fara yfir áætlunina. Flokka og skipta upp einstaka færslum sem eiga heima annarsstaðar og setja sér svo sameiginleg eða einstaklingsmarkmið til að fá betri yfirsýn yfir heimilisfjármálin.
Hérna er grein frá Örnu þar sem hún tekur fyrir áætlunina í Meniga: https://www.meniga.is/blog/vaktadu-verdbolguna-med-meniga
Ef það er eitthvað sem þvælist fyrir þér þá máttu alltaf heyra í okkur með því að senda okkur fyrirspurn í gegnum vef Meniga eða póst á netfangið meniga@meniga.is.
