Mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir fjármál heimilisins

Að stjórna heimilisbókhaldinu á skilvirkan hátt er lykill að fjárhagslegri heilsu, bættum ákvörðunum og minni streitu.

Hvort sem þú ert einstaklingur eða með stóra fjöskyldu, getur það haft mjög jákvæð áhrif á heimilisfjármálin og lífið sjálft að hafa skýra yfirsýn yfir eyðsluna.

Oft liggur rót fjárhagsvanda í því þegar smærri útgjöld safnast saman án þess að viðkomandi taki eftir því. Til dæmis geta óþarfa áskriftir eða illa áætluð innkaup safnast saman og takmarkað fjárhagslegt svigrúm heimilisins til að mæta óvæntum og þörfum útgjöldum. Því er lykilatriði að skilja hvert peningarnir okkar eru að fara og tryggja nægilega yfirsýn á hvað er nauðsynlegt og hvað ekki.


Einmitt þar kemur Meniga til sögunnar – heimilisbókhaldslausn sem einfaldar lífið og hjálpar til við að halda utan um eyðslu þína á markvissan hátt. Meniga er frítt, þægilegt í notkun og býður upp á marga gagnlega eiginleika til að auka fjárhagslega yfirsýn og styðja við betri ákvarðanatöku þegar kemur að heimilisfjármálunum.

Meniga er frítt, þægilegt í notkun og býður upp á marga gagnlega eiginleika til að auka fjárhagslega yfirsýn og styðja við betri ákvarðanatöku þegar kemur að heimilisfjármálunum.

Með Meniga getur þú tengt bankareikninga* þína á einn stað og forritið flokkar öll viðskipti þín sjálfvirkt. Hvort sem þú vilt vita hversu miklu þú eyðir í matvöru, afþreyingu eða samgöngur, er Meniga þarna til að veita skýra mynd af fjárhagslegri hegðun þinni. Slíkt yfirlit getur hjálpað við að taka betri ákvarðanir um eyðslu og forgangsraða því sem er mikilvægast. Með Meniga getur sambúðarfólk líka tengt saman aðganga sína og fengið þannig sameiginlega sýn á allt heimilisbókhaldið, jafnvel þó aðilar séu í viðskiptum við ólíka banka.


Meniga hjálpar líka til við að gera fjármálin skemmtilegri en í appinu er hægt að setja sér áskoranir um minni eyðslu í völdum flokkum á milli mánaða. Er mögulega verið að safna fyrir sumarfríi, nýju heimilistæki eða einhverju öðru skemmtilegu? Þá getur Meniga hjálpað við að setja raunhæf markmið og fylgjast með framvindunni.


Það getur verið erfitt (og oft frekar leiðinlegt) að sýna þann aga sem þarf til að ná góðri yfirsýn á heimilisbókhaldið. Tilgangur Meniga er að reyna bæði að einfalda þessa vinnu og gera hana skemmtilegri svo við getum öll búið við betri fjárhagslega heilsu. Það er líka gott að hafa í huga að það er bæði aldrei of seint að byrja og það þarf heldur ekki að fylgjast með hverri einustu færslu, en þetta byrjar allt á heimilisbókhaldinu.

*Viðskiptavinir Arion Banka, Íslandsbanka og Landsbanka geta tengt reikninga sína við Meniga